Tímaritabox eru til á flestum heimilum og fást í ótrúlega mörgum gerðum og litum. Í þessu myndbandi má sjá hvernig þú getur komið ótrúlega góðu skipulagi á eldhúsið þitt, bara með því að nota tímaritabox. Virkilega sniðug aðferð sem auðveldar aðgengi og sparar pláss. Það eina sem þú þarft eru tímaritabox og sterkt límband, eitthvað sem venjulega er notað á skrifstofum en eru frábær lausn í eldhúsið.