Jeremy Meeks gekk niður tískupalla New York tískuvikunnar fyrir þýska fatahönnuðinn Philip Plein í vikunni. Jeremy Meeks, einnig þekktur sem „Hot Mugshot Guy,“ heillaði heimsbyggðina þegar fangamynd af honum gekk eins og eldur í sinu um netheima. Sterkur kjálki, gnístandi bláu augu og háu kinnbein vöktu sérstaklega mikla athygli, en hann var talinn sem myndarlegasti fangi heimsins.
Myndin, sem var tekin á lögreglustöð þegar hann var tekinn í varðhald, kom honum á kortið í tískubransanum og gengur hann nú tískupalla þar sem stjörnur eins og Kylie Jenner, Tyga og Madonna sitja á fremsta bekk.
Hann fór frá því að vera fangi í að vera fyrirsæta og við vonum að hann haldi sig á þeirri braut og fáum að sjá meira af honum!