fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024

David Duke vill ekki að Chris Evans sé myndaður með svörtum konum – Svarið hans var fullkomið!

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 15. febrúar 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

David Duke, fyrrum leiðtogi Ku Klux Klan, er ósáttur við ástarlíf Chris Evans, sem leikur Captain America. Það lítur út fyrir að David Duke sé mikill aðdáandi Chris Evans og var að leita að myndum af honum á netinu þegar hann sá myndir af Chris með konum sem voru af öðrum kynþætti en hvítar.

Fyrir þennan fyrrum leiðtoga KKK sem trúir á yfirburða hvíta var þetta mikið hneyksli og ákvað hann að tjá sig um það á Twitter. Hann sagði að Chris hataði hvítar konur og merkti færsluna með #WhiteGenocide, eða „hvítt þjóðarmorð.“

https://twitter.com/DrDavidDuke/status/830820650482880512?ref_src=twsrc%5Etfw

„Af hverju hatar Chris Evans, sá sem leikur ofurhetju af gyðingarættum Captain American, hvítar konur svona mikið? #HvíttÞjóðarmorð“

Leikarinn hefur verið duglegur að tjá pólitískar skoðanir sínar á Twitter, í grundvallaratriðum þá þolir hann ekki Donald Trump og stefnur hans. Chris svaraði David Duke á Twitter en ekki með hatri og reiði, eins og væri mjög auðvelt að gera í svona aðstæðum, heldur svaraði honum meistaralega með skilaboðum um ást.

„Ég hata þær ekki. Það er þín aðferð. Ég elska. Prufaðu það. Það er sterkara en hatur. Það sameinar okkur. Ég lofa það er í þér undir reiðinni og óttanum.“

Vel gert Chris Evans að dreifa boðskap ástar og jafnréttis, við elskum þig!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Þjófagengi sem stelur frá skátunum hótaði hjólahvíslaranum – „Ég kem heim til þín“

Þjófagengi sem stelur frá skátunum hótaði hjólahvíslaranum – „Ég kem heim til þín“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Segja íslenskum fjölmiðlum að þegja og saka þá um falsfréttir

Segja íslenskum fjölmiðlum að þegja og saka þá um falsfréttir
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Klóra sér í kollinum yfir árásarmanni Trump – Hvers vegna reyndi hann að myrða forsetaframbjóðandann?

Klóra sér í kollinum yfir árásarmanni Trump – Hvers vegna reyndi hann að myrða forsetaframbjóðandann?
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Arsenal og United munu berjast um sama manninn í sumar

Arsenal og United munu berjast um sama manninn í sumar

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.