Ruby Rose hefur heillað heiminn með fallegu brosi, húðflúruðum líkama og kynþokkafullu útliti. Og að sjálfsögðu sjarmerandi persónuleika. Allir virðast vera yfir sig skotnir í henni og hafa margar stelpur lýst því yfir að þrátt fyrir að þær séu ekki samkynhneigðar myndu þær gera undantekningu fyrir Ruby Rose. Sjáðu hvernig Ruby Rose hefur breyst í gegnum árið, Buzzfeed tók saman.
Síðan hún byrjaði að leika í Orange Is The New Black hefur aðdáendahópur hennar stækkað gífurlega og lítur út fyrir að það sé ekki að fara að breytast neitt bráðlega.
En ef þú ert ekki annað hvort frá Ástralíu eða harður súperaðdáandi þá veistu kannski ekki að hún hóf feril sinn sem þátttakandi í Girlfriend fyrirsætukeppninni 2003.
Mynd/Getty