Nú er Valentínusardagurinn á næsta leyti en hann er frekar nýr af nálinni hérlendis. Engu að síður er fjöldi fólks sem nýtur þess að halda hann hátíðlegan. Þetta er auðvitað bara kjörin afsökun til þess að halda upp á ástina og njóta hennar í botn. Hefðin er að pör gefi hvort öðru gjafir – en það er auðvitað engin skylda. Við mælum þó eindregið með því að gefa frekar upplifun sem þið getið notið saman.
Hér eru nokkrar hugmyndir að Valentínusargöfum. Það er ljóst að engin ein hugmynd hentar öllum en þó sumar kunni að vera stórfurðulegar skal ekki gleyma því að lífið er til gamans gert og engin ástæða til þess að taka nokkru of alvarlega.
Blóm eru sígild gjöf enda eru þau falleg, ilma vel og lífga upp á umhverfið. Þetta er kannski ofboðslega auðveldur kostur en það þarf ekki endilega að þýða að þetta sé ekki réttur kostur. Kannski er stóra spurningin sem þú þarft að spyrja þig, fílar ástin þín blóm? Ef svarið er já þarftu kannski ekki að leita lengra.
Rómantíkin nýtur sín betur þegar amstur hversdagsins er skilið eftir. Þess vegna er tilvalið að gefa gistingu á hóteli. Hægt er að finna ýmis tilboð á kostakjörum á aha.is og þó víðar væri leitað. Þið fáið frí frá ykkar hefðbundna umhverfi, sleppið við eldamennskuna og þurfið ekki að þvo sængurfötin sjálf eftir villta ástarleiki.
Ef þú hefur kost á því að komast í sumarbústað skaltu nýta tækifærið. Skellið ykkur í kósífötin, kveikið á kertum, hlustið á ljúfa tónlist eða glápið saman á rómantíska gamanmynd, eldið góðan mat og njótið þess að vera í friði og ró.
Leyfðu ástinni þinni að slappa af á meðan þú útbýrð dýrindis máltíð. Þú þarft ekki einu sinni að vera hugmyndaríkur kokkur ef þú kannt að fylgja uppskriftum. Legðu á borðið, kveiktu á kertum, og njótið svo saman.
Já, ég veit. *Andvarp* … ljóð. Þú þarft ekkert að vera eitthvert Nóbelsskáld til þess að segja hvað býr þér í hjarta. Og ef þér finnst það hallærislegt má það alveg. Af hverju ekki að yrkja aðeins um ástina? Þið getið meira að segja skipst á að semja hörmuleg ástarljóð til hvers annars!
Líður að kveldi,
Ástin mín blíða;
Hættum að yrkja
og förum að ríða!
Hey! Föndraðu origami hjarta handa ástinni þinni. Þið getið líka föndrað svoleiðis saman. Lífið þarf ekki að vera flókið.
Hvað kann ástin í lífi þínu virkilega vel að meta? Settu það saman fallega gjafakörfu. Leyfðu hugmyndafluginu að ráða för: Rauðvín, ostar og súkkulaði. Góð bók, baðbomba og freyðivín. Lesgleraugu, ullarsokkar og skáldsaga. Það má fylla þessa körfu með hverju sem er.
Þú last þetta rétt. Gefðu pítsu. Pítsa er ást.