fbpx
Miðvikudagur 12.febrúar 2025

Ný Fokk ofbeldi húfa í sölu

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 10. febrúar 2017 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

UN Women á Íslandi hefur sett í sölu nýja Fokk ofbeldi húfu. Húfunni er ætlað að vekja fólk til vitundar um stöðuga ofbeldið sem konur og stelpur þurfa að þola á almenningssvæðum í borgum heimsins. Við hvetjum ykkur kæru lesendur til þess að styrkja þetta flotta framtak.

Segir í tilkynningu frá UN Women á Íslandi:

Ofbeldi gegn konum, stúlkum og börnum í almenningsrýmum er vandamál um allan heim. Konur sem búa á þéttbýlissvæðum eru tvöfalt líklegri til að verða fyrir ofbeldi, sérstaklega í fátækustu löndum heims samkvæmt rannsóknum á vegum Sameinuðu þjóðanna. Meira að segja í öruggustu borgum heims eins og Reykjavík verða konur fyrir ofbeldi af ýmsu tagi fyrir það eitt að vera konur. Víða um heim er slíkt ofbeldi daglegt brauð sem hamlar konum að lifa eðlilegu lífi eins og að ferðast til og frá vinnu, ganga í skóla eða eiga sér félagslíf. Með verkefninu Öruggar borgir (Safe Cities Global Initiative) vinnur UN Women að því að gera borgir heimsins öruggari fyrir konur og stúlkur með sértækum lausnum út frá svæðisbundnum veruleika.

Það er ósk UN Women á Íslandi að landsmenn taki þátt í að auka öryggi kvenna og stúlkna í borgum um allan heim með því að kaupa Fokk ofbeldi húfuna. Ágóðinn rennur til verkefnis UN Women Öruggar borgir (Safe Cities Global Initiative) en vert er að taka fram að Vodafone styrkti framleiðsluna svo allur ágóði rennur til verkefnisins. Það var hæfileikaríki ljósmyndarinn Saga Sig sem myndaði fyrir auglýsingaherferðina fyrir Fokk ofbeldi húfurnar.

Athugið að Fokk ofbeldi húfan er ætluð fullorðnum. Orðalagið er vísvitandi ögrandi og ætlað að hreyfa við fólki. Ef orðalagið fer fyrir brjóstið á fólki þá er mikilvægt að muna að ein af hverjum þremur konum verða fyrir ofbeldi á lífsleiðinni.

Fokk ofbeldi húfan fæst í verslun Vodafone í Kringlunni og á www.unwomen.is dagana 10. – 24. febrúar. Húfan kostar 4.500 krónur og aðeins til í takmörkuðu upplagi. Við á Bleikt og UN Women á Íslandi hvetja alla til að næla sér í húfu og gefa um leið ofbeldi fingurinn!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Benjamin Mendy búinn að finna sér nýja vinnuveitendur

Benjamin Mendy búinn að finna sér nýja vinnuveitendur
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Nýjar myndir af Justin Bieber valda aðdáendum miklum áhyggjum

Nýjar myndir af Justin Bieber valda aðdáendum miklum áhyggjum
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Aðdáendur Taylor Swift hefndu sín grimmilega

Aðdáendur Taylor Swift hefndu sín grimmilega
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Ótrúlegt svar á samfélagsmiðlum – Minnti á það þegar hann var með tærnar á dóttur sinni uppi í sér

Ótrúlegt svar á samfélagsmiðlum – Minnti á það þegar hann var með tærnar á dóttur sinni uppi í sér
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Vill ekki framlengja við Liverpool – Tvö ensk félög á eftir honum

Vill ekki framlengja við Liverpool – Tvö ensk félög á eftir honum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Senda viðvörun í Hafnarfjörðinn og segja menn geta óttast það versta – „Þá getur þetta orðið mjög slæmt“

Senda viðvörun í Hafnarfjörðinn og segja menn geta óttast það versta – „Þá getur þetta orðið mjög slæmt“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.