Tilfinningarnar báru Lady Gaga ofurliði eftir að hún hafði lokið sýningu sinni í hálf leik Super Bowl á sunnudag. Þegar söngkonan kom baksviðs brotnaði hún saman og grét en systir hennar beið þar og var snögg að faðma hana. Lady Gaga hefur dreymt um að taka þetta erfiða verkefni að sér síðan hún var fjögurra ára gömul. Atriðið var stórkostlegt en það er mjög skiljanlegt að þetta hafi verið tilfinningarík stund fyrir hana.