Vefsíðan HMagasín.is fór í loftið 9.janúar síðastliðinn og á fimmtudaginn var þeim áfanga fagnað í Pedersen svítunni. Herra Hnetusmjör, Hildur og Frikki Dór fóru á kostum á þessum skemmtilega viðburði. Á síðunni HMagasín má finna fjölbreytt efni og pistla frá íþróttamönnum, heilsusérfræðingum og matarunnendum og margt fleira áhugavert. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá þessu kvöldi: