fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025

Stuðlag Hildar fjallar um þegar hún hitti kærastann sinn – Nýtt myndband við lagið Bambaramm

Ari Brynjólfsson
Föstudaginn 3. febrúar 2017 12:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Hildur tekur þátt í forkeppni Eurovision sem hefst 25.febrúar, lagið hennar nýja Bambaramm hefur nú öðlast enn meira líf í skemmtilegu texta-myndbandi. Freistar Hildur þess að stíga á stokk fyrir Íslands hönd í Kænugarði þann 9.maí næstkomandi.

„Ég fékk Andreu Björk Andrésdóttur vinkonu mína sem er “motion designer“ til þess að gera myndbandið. Við unnum saman við gerð síðast myndbands sem ég gaf út og gekk það svona líka glimrandi vel. Andrea er reyndar búsett í Berlín þannig að samvinnan fór fram í gegnum Skype og Facebook, þaning að þessi samvinna er mjög í anda Eurovision – svona á milli landa í Evrópu! Við vildum gera virkilega hresst og krúttlegt vídjó í anda lagsins og textans og við fengum innblástur frá japönskum karaoke-vídjóum. Ég er með BA-gráðu í japönsku sem ég fæ nánast aldrei að flagga en þegar við ákváðum að hafa japanskan texta í viðlögunum gat ég heldur betur dustað rykið af japönskunni! Ég er virkilega ánægð með útkomuna og finnst myndbandið ná vel að undirstrika gleðina í laginu.“

segir Hildur:

„Lagið fjallar um augnablikið þegar þú hittir manneskju sem þú verður skotin í. Þetta er eiginlega bara samið um þegar ég hitti kærastann minn, í staðinn fyrir að gera væmið ástarlag henti ég bara í eitt stuðlag, því mig langar að hafa gaman upp á sviði! Bammbaramm er vísun í hjartsláttinn sem kemur þegar maður sér ástina. Ég er búin að fá virkilega góð viðbrögð við laginu og margir hafa orð á að nú sé tími að senda út hresst lag í keppnina og ég gæti ekki verið meira sammála!“

Hildur er nú í óða önn að undirbúa sviðssetningu lagsins, en Bammbaramm keppir í fyrri undanúrslitum Söngvakeppninnar þann 25.febrúar.

„Það er virkilega mikil tilhlökkun í mér að flytja lagið því að ég held að sviðssetningin muni gefa laginu byr undir báða vængi. Þetta verður ein stór gleðibomba sem ég vona að hrífi fólk með sér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Hlutirnir líta bara betur út á morgnana

Hlutirnir líta bara betur út á morgnana
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Væb róa í Eurovision eftir glæsilegan sigur í Söngvakeppninni

Væb róa í Eurovision eftir glæsilegan sigur í Söngvakeppninni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Settu ótrúlegt met í ensku úrvalsdeildinni

Settu ótrúlegt met í ensku úrvalsdeildinni
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Lét vin sinn grafa eigin gröf eftir að hafa séð hrottalegt myndband                    

Lét vin sinn grafa eigin gröf eftir að hafa séð hrottalegt myndband                    
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Í bréfi frá Isaac Newton spáði hann fyrir um heimsendi

Í bréfi frá Isaac Newton spáði hann fyrir um heimsendi
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Segir Jón Pétur Zimsen kasta steinum úr glerhúsi – Blokkaði fyrrum nemanda sinn á Facebook í aðdraganda kosninganna

Segir Jón Pétur Zimsen kasta steinum úr glerhúsi – Blokkaði fyrrum nemanda sinn á Facebook í aðdraganda kosninganna
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Læknir segir að þessi 5 að því virðist meinlausu einkenni geti verið merki um krabbamein

Læknir segir að þessi 5 að því virðist meinlausu einkenni geti verið merki um krabbamein
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

England: Þrjú mjög óvænt úrslit í ensku úrvalsdeildinni – Arsenal tapaði gegn West Ham

England: Þrjú mjög óvænt úrslit í ensku úrvalsdeildinni – Arsenal tapaði gegn West Ham

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.