Karlatímaritið GQ finnst nýkjörinn forseti Bandaríkjanna ekki alveg með nógu flott lúkk. Því var ákveðið að gefa Trump smá „makeover“ til þess að sýna fólki hvernig hann gæti verið. Nýi stíllinn er þónokkuð ólíkur því sem við erum vön að sjá á Trump. Aðalatriðin sem GQ fannst þurfa að breyta eru hárið, brúnkukremið, jakkafötin og bindið. Útkoman er virkilega flott… allavega mun skárri. Myndband af þessari tölvugerðu breytingu má sjá hér fyrir neðan. Nú er bara að bíða og sjá hvort Trump taki ábendingar þeirra til greina. Líklega ekki samt.