Fréttin hefur verið uppfærð…
Norsku unglingaþættirnir SKAM slógu óvænt í gegn á Íslandi og þrátt fyrir að þættirnir snúist um unglinga hefur fólk á öllum aldri játað að vera aðdáendur. Í fyrstu þremur þáttaröðunum var alltaf ein persónan í aðalhlutverki. Eva, Noora og Ísak voru aðalsögupersónurnar í fyrstu þremur þáttaröðunum en svo virðist sem Vilde verði aðalstjarnan í næstu þáttaröð.
Leikonan Ulrikke Falch leikur hlutverk Vilde og setti hún mynd á Instagram þar sem hún segist verða aðalhlutverkið í þáttaröð fjögur. Myndatextanum var svo strax breytt og nú stendur þar bara „4.“ Aðdáandi náði þó skjáskoti áður en þessu var breytt og birti myndina í Kosegruppa DK, aðdáendasíðu þáttanna SKAM í Danmörku.
Ulrikke breytti myndatextanum aftur og segir að hún hafi ekki gert þessa tilkynningu á Instagram, einhver hafi farið inn og breytt textanum hennar. Við þurfum víst því að bíða örlítið lengur með að vita hvort Vilde verður aðalpersónan í Skam 4 eða einhver annar leikari.
https://www.instagram.com/p/BPYM3nwj47F/?taken-by=ulrikkefalch