Tveggja ára gamall drengur hefur vakið athygli heimspressunnar fyrir einstaka körfuboltahæfileika sína. Í myndbandi sem pabbi hans deildi á netinu má sjá drenginn kasta hverjum boltanum á fætur öðrum ofan af svölum og beint ofan í lita körfu á hæðinni fyrir neðan. Það er ljóst að hinn kornungi Calvin frá Ohio í Bandaríkjunum á framtíðina fyrir sér í þessari íþrótt.
„Hann hefur verið heltekin af körfubolta frá því áður en hann gat labbað,“ segir pabbi hans, Mike Shannon. „Á hverjum morgni þegar hann vaknar vill hann spila og horfa á körfubolta. Sama áður en hann fer að sofa.“
Sjáið þessa ótrúlegu takta!