Bloggarinn og snapparinn Camilla Rut bjóst líklega ekki eftir að ferillinn mundi leiða hana í þá átt sem raunin varð í morgun þegar hún rakst á mynd af fótum sínum á Instagram-reikningnum footloversrejoice:
https://www.instagram.com/p/BPZBS1iDymD/?taken-by=footloversrejoice
Camilla Rut er bloggari hjá mamie.is og vinsæll snappari undir nafninu camyklikk. Hún er mamma og er á leið upp að altarinu í byrjun febrúar til að giftast æskuástinni!
„Ég sá myndina þegar ég vaknaði í morgun, viðkomandi hafði þá taggað mig í henni til að vera alveg viss um að ég sæi hana,“ sagði Camilla þegar við á Bleikt höfðum samband við hana í dag.
„Ég ætla ekkert að skafa af því en ég vakti restina af heimilisfólkinu með öskurhlátri.“
Myndin sem hafði verið birt á Instagram var aðdráttur úr annarri mynd sem hún hafði birt á sínum eigin Instagram reikningi fyrir nokkru síðan:
Camilla gerði þó athugasemd við að sá sem stendur á bak við fótadýrkunarreikninginn á Instagram gaf henni aðeins 8 í einkunn af 10 mögulegum. Skyldi það hafa verið ákveðinn skellur?
„Jújú, 8/10 er vissulega skellur, en þeir gáfu mér þarna ábendingar eins og að setja á mig bleikt naglalakk – ég er viss um að það komi mér upp í 10/10. Maður getur alltaf gert betur, þessi einkunn heldur mér allavega á tánum!“
Það er ekki laust við að Camilla sjái ný tækifæri leynast í þessari óvæntu athygli. „Ég hef ekki gefið mig út fyrir að vera með fallega fætur, enda leyndur eiginleiki sem hefur hingað til bara fengið að njóta sín í svefnherberginu. Nú hefur alþjóð fengið að sjá þessar stórglæsilegur bífur sem ég hef og er ég opin fyrir öllu. Ég mun
alveg taka því opnum örmum þegar tækifærin fara að hrannast inn. Sem ég er alveg 100% viss um að gerist!“