Leikkonan Margot Robbie hefur tekið að sér titilhlutverkið í kvikmyndinni I, Tonya sem fjallar um líf skautadansarans Tonya Harding. Nýlega láku á netið myndir af henni í hlutverkinu og þykir hún nær óþekkjanleg.
Robbie vakti mikla athygli fyrir hlutverk sitt í hasarmyndinni Suicide Squad sem kom út á síðasta ári. Hún þótti prýðileg í hlutverki Harley Quinn þrátt fyrir að myndin hafi almennt fengið slaka dóma. Hún lék einnig í Óskarsverðlauna kvikmyndinni Wolf of Wall Street og átti eftirminnilegt gestahlutverk í The Big Short.
Hér má sjá myndir af leikkonunni í hlutverki Tonya Harding:
[NEW] Margot Robbie on set of her upcoming film „I, Tonya“ today! She looks unrecognizable 😱 pic.twitter.com/Mh7cANzauI
— best of margot (@bestofmargot) January 16, 2017
Kvikmyndin I, Tonya mun fjalla um velgengni skautadansarans fram að líkamsárás hennar á mótherja sinn Nancy Kerrigan. Eiginmaður hennar, Jeff Gillooly, var meðsekur í líkamsárásinni en hann verður leikinn af Sebastian Stan. Myndin er væntanleg í kvikmyndahús árið 2018 en tökur hófust fyrir skömmu.