Þegar barnatannlæknirinn Dana Chianese fann skrítna lykt af Sophie nagleikfangi á heimilinu þegar hú þreif það. Hún ákvað því að skera það í sundur og skoða inn í það. Hún átti alls ekki von á því sem blasti við henni þegar hún opnaði leikfangið, svört mygla.
Sophie gírafinn er gríðarlega vinsælt barnanagdót sem selt er víða um heim. Gíraffinn fallegi er frá Frakklandi og þykir einstaklega góður valkostur að nagdóti fyrir ungbörn, sérstaklega þegar þau eru í tanntöku. Sophie gírafinn er með litlu gati því þegar börnin kreysta hann eða naga þá heyrist ákveðið hljóð sem börnum þykir mjög skemmtilegt. Raki eins og slef getur komist inn í gatið og getur það greinilega myglað með tímanum án þess að foreldrar taki eftir því.
Dana lét síðuna Good Housekeeping vita af þessu atviki og hafa fleiri foreldrar opnað gírafaleikfangið fræga og haft sömu sögu að segja. Sagði Dana um hræðilegu uppgötvunina sína:
„Ég fann heila vísindatilraun inni í honum. Illa lyktandi, ljót mygla bjó inn í uppáhalds nagdóti smábarnsins míns,“
Stephanie Oprea skar í sundur Sophie gíraffann á sínu heimili og sá þá að hann var svartur að innan vegna myglu.
Einn notandi á spjallþræði foreldrasíðunnar What to Expect prófaði að skera fæturna af gírafa barnsins síns og sá þá strax að hann var stútfullur af myglu. Var mynd birt af þessu á síðunni til þess að vara aðra foreldra við þessari hættu.
Börn geta í sumum tilfellum veikst vegna myglu. Ef leikföngin eru vel þrifin er oftast hægt að koma í veg fyrir myglu. Það er gríðarlega mikilvægt að þrífa öll glös, nagdót, leikföng, baðendur og annað sem raki getur lokast inn í. Mikilvægt er að skipta reglulega út öllu því sem gæti myglað. Sumt af þessu má setja í uppþvottavél, annað þarf að sjóða eða þrífa með ediki. Leiðbeiningar um þrif fylgja oftast með öllum nýjum leikföngum og drykkjarföngum. Nauðsynlegt er að þrífa öll leikföng sem geta safnað vatni að minnsta kosti einu sinni í viku.