Aðdáendur Kim Kardashian hafa tekið því fagnandi að hún sé komin aftur á samfélagsmiðla eftir langa fjarveru. Kim var rænd á hótelherberginu sínu í París í byrjun október og tók sér hlé frá samfélagsmiðlum í kjölfarið. Hins vegar hefur Kim breytt um stefnu þegar kemur að hvernig myndum hún deilir á Instagram, áður fyrr var Instagramið hennar yfirfullt af myndum af glæsilegum lífstíl þeirra hjóna og systra, og að sjálfsögðu nóg af sjálfsmyndum.
Instagram myndir Kim Kardashian vikuna fyrir ránið.
En nú eru myndir hennar með allt öðrum brag eins og sést hér fyrir neðan.
Margir hafa velt því fyrir sér hvar Kardashian-West hjónin voru þegar þau tóku þessar myndir, en þau eru augljóslega ekki stödd í glæsuvillu sinni sem við sjáum í Keeping Up With The Kardashians.
Sumir héldu því fram að þau væru að heimsækja ættingja í Oklahoma, aðrir ásökuðu hjónin um að leika sér að „þykjast vera fátæk.“ Hvorugt er rétt en blaðamaður Buzzfeed komst að því hvar myndirnar voru teknar. Kim og Kanye voru í upptökuveri hjá vini sínum Rick Rubin í Malibu en hann er stofnandi Def Jam. Sönnunargagnið er myndband frá BBC af skoðunarferð um fræga upptökuverið frá árinu 2014.