Hárgreiðslu- og listakonan Janine Ker notar stensla til að gera litríkar og margslungnar hárgreiðslur fyrir kúnnana sína. Samkvæmt Teen Vogue þá teiknar hún fyrst hugmyndirnar sínar á striga áður en hún útfærir þær á hár fólks. Janine byrjaði að deila myndum af „hárlistaverkum“ sínum á Instagram og er hún núna með næstum 25 þúsund fylgjendur, ásamt því að miðlar eins og Buzzfeed, Refinery29 og Bored Panda hafa fjallað um hana og þessa nýju framúrstefnulegu hártísku. Það verður spennandi að sjá hvort þetta verði heitasta hár trendið í sumar, litríkt og skemmtilegt!
https://www.instagram.com/p/BKGLhwSDDPv/?taken-by=janine_ker_hair
https://www.instagram.com/p/BPEc9OUhJH6/?taken-by=janine_ker_hair
https://www.instagram.com/p/BPDh8PtBK2-/?taken-by=janine_ker_hair
https://www.instagram.com/p/BN-ALlYBnwN/?taken-by=janine_ker_hair