Fegurðarprinsinn The Weeknd var nú ekki lengi að jafna sig eftir sambandsslitin við Bellu Hadid, enda er hann búinn að losa sig við furðuhárið og hefur aldrei verið fegurri.
Núna spyr heimspressan sig hvort hann sé hreinlega byrjaður með Selenu Gomez. Þau sáust láta vel hvort að öðru fyrir utan hinn agalega trendí veitingastað Giorgio Baldi í Santa Monica.
Nú er spurning hvað leiðtogi stúlknaklíkunnar sem bæði Selena og Gigi fyrrverandi mágkona Weeknd mun segja um ráðahaginn. Leiðtoginn er vitaskuld Taylor Swift.
Hér eru nokkrar myndir sem hafa flogið eins og eldur í sinu um alnetið síðustu klukkutímana. Við á ritstjórn Bleikt ákváðum að semja skapandi myndatexta við þær – enda er alltaf gaman að reyna að gera sér í hugarlund hvað fræga og fallega fólkið spjallar um á stundum sem þessum!
Hér má sjá þegar Bleikt fagnaði nýju hárgreiðslu Weeknd: