Franska lögreglan handtók í gær 17 einstaklinga í tengslum við árásina á hótelherbergi Kim Kardashian í París 3.október á síðasta ári. Meðal þess sem ræningjarnir tóku með sér á brott voru rándýrir skartgripir. Kim var bundin á meðan ráninu stóð og var byssu miðað á hana. Einstaklingarnir sem yfirheyrðir hafa verið vegna málsins eru á aldrinum 23 til 72 ára og flestir á sakaskrá en á meðal þeirra er bílstjóri Kim í París.
Ránið í parís var stærsta skartgriparán á einstaklingi í yfir tvo áratugi í Frakklandi. Málið er í rannsókn en margt bendir til þess að einhver nærri Kim hafi tekið þátt í ráninu á einhvern hátt. Bílstjóri Kim og fjölskyldu hennar í París var 27 ára karlmaður og starfaði hann fyrir fyrirtækið sem sér alltaf um samgöngur Kim og Kanye í Frakklandi.
Svo virðist sem þjófarnir hafi vitað nákvæmlega hvenær og hvar væri best að ráðast á Kim og ná öllum hennar verðmætum, símum og auðvitað rándýra trúlofunarhringnum hennar. Lögreglan sagði frá því í gær að bílstjórinn hefði alltaf vitað um staðsetningu Kim og frekari upplýsingar. Ránið átti sér stað þegar Pascal Duvier lífvörður hennar fylgdi systrum hennar út á lífið, það var væntanlega engin tilviljun.
Jean Veil lögfræðingur Kim í Frakklandi sagðist fagna þessum fréttum og vonar að málið verði leyst sem fyrst. Vonar hann einnig að hugsanlega finnist eitthvað af skartgripum raunveruleikastjörnunnar.
„Þetta endar þær fáránlegu vangaveltur þeirra sem héldu að það væri sniðugt að láta eins og þetta rán hafi verið sviðsett eða auglýsingabrella skipulögð af Ms. Kardashian.“