Kvikmyndin um Fríðu og dýrið, Beauty and the Beast, er frumsýnd í mars á þessu ári og bíða margir spenntir eftir því að sjá ævintýrið lifna við enda skartar myndin einvala liði leikara. Meðal þeirra er Emma Watson sem leikur Fríðu eða Belle eins og hún heitir á ensku. Eins og vanalega hefur Disney hafði framleiðslu á alls kyns varningi tengdum myndinni en þar á meðal er sérstök dúkka sem á að líkjast Emmu Watson í hlutverki Belle.
Dúkkusafnarinn William Herrington birti mynd af dúkkunni á vefsvæði sínu á Flickr fyrir skömmu og í kjölfarið hafa netheimar logað. Óhætt er að segja að útlit dúkkunnar hafi ekki fallið í kramið hjá fólki – en þetta minnir okkur ansi mikið á fjaðrafokið sem varð hér um árið í kringum dúkkuna sem líkjast átti söngkonunni Birgittu Haukdal.
Fjölmargir hafa deilt myndunum á Twitter þar sem ein vinsælasta kenningin er að þetta sé í raun söngvarinn Justin Bieber klæddur í kjól.
THIS IS HORRIFYING! Disney WYD?! pic.twitter.com/XS1eSaL118
— jon starkgaryen (@Listen2Nique) January 7, 2017
@CGBPosts definitely it’s Bieber pic.twitter.com/IlR2clhydR
— Chico Fantasma. (@Superpizzacorn) January 7, 2017
That’s Justin Bieber in a dress though pic.twitter.com/Psor2d6clS
— Common Gay Boy (@CGBPosts) January 7, 2017
when you order an emma watson doll online but a justin bieber doll in a yellow dress & a wig arrives instead pic.twitter.com/PUQUBXyufT
— rebekka (@dolanschistad) January 7, 2017
I CANT STOP LAUGHING THIS IS SO TRAGIC pic.twitter.com/g0JZd9KUl0
— sara (@diagonallcys) January 7, 2017