fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024

Frægðarhórulandið Ísland

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 8. janúar 2017 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að búa í landi þar sem að höfðatala landans summar eina stórborg í nágrannalöndum okkar er hugsanlega það skondnasta sem til er. Fáir eru að berjast um bitann á frægðinni eða bara í grófum dráttum öllu. Allir eru að “finna upp hjólið” og ég veit ekki hvað það eru margar “lífstílsvefsíður” til á netheimum á Íslandi núna, ég hætti að nenna að telja eftir tíu síður……

Ef eitthvað kemur uppá hjá þessum svokölluðu lífstílsíðum þá er maður ekki lengi að komast að því hvers vegna, því jú við erum bara svo fáránlega fá hér á landi og það er alltaf maður sem þekkir mann og svo framvegis. Frægt er orðið þegar tveir vinsælir snapparar “snöppuðu” í fyrra en þar var víst aðal rifrildaefnið þrif, ég meina kommon!

Rannveig Jónína höfundur greinar

Þegar nýjar vörur koma á klakann þá eiga allir þannig því hjarðhegðunin er slík að enginn má vera útundan því þá er hann ekki hip og kúl. Allir keppast um að senda snöppurum og bloggurum vörurnar sínar (þó sérstaklega snyrtivörur) og einhvernveginn verður Snap heimurinn einsleitur því allir eru að sýna það sama og “mæla með” því sama.

Fáir eru beittir á Snapchat en það er eitthvað sem mér finnst vanta í flóruna, fáir eru líka beittir almennt á netmiðlum því þeir hræðast það að segja sannleikann, æji þið vitið þá missa þeir fylgjendur og verða óvinsælir. Ekki er ég þó að setja alla undir sama hattinn því það eru alveg þónokkrir sem eru þrælbeittir (já það er orð) eins og hún Guðrún Veiga, hún lætur ekki vaða yfir sig og þrátt fyrir að koma með eina til tvær hvítar lygar nokkrum sinnum á dag þá svarar hún fyrir sig á fáránlega beittan hátt og það kann ég að meta.

Ég er að spá í að verða svona beittur snappari og beittari penni, segja það sem mér finnst án þess að (reyna) að særa einhvern, þetta vantar í flóruna, einhvern sem er bara svolítið skít sama um allt það sem hinum finnst. Það blundar nefnilega alveg frægðarhóra í mér eins og öllum hinum………..

Snapchat: rannveigjonina

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Arsenal á eftir einni af hetjum Spánar

Arsenal á eftir einni af hetjum Spánar
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Nokkuð stórt gjaldþrot hjá fyrrverandi eiganda Mathúss Garðabæjar

Nokkuð stórt gjaldþrot hjá fyrrverandi eiganda Mathúss Garðabæjar
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Fatnaður fegurðardrottningar falur

Fatnaður fegurðardrottningar falur
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Segir frá atviki sem ekki sást í sjónvarpinu – Bellingham sturlaðist og sagði þetta við Southgate

Segir frá atviki sem ekki sást í sjónvarpinu – Bellingham sturlaðist og sagði þetta við Southgate
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Klóra sér í kollinum yfir árásarmanni Trump – Hvers vegna reyndi hann að myrða forsetaframbjóðandann?

Klóra sér í kollinum yfir árásarmanni Trump – Hvers vegna reyndi hann að myrða forsetaframbjóðandann?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Sorglegur endir Messi og fótboltans á Spáni

Sorglegur endir Messi og fótboltans á Spáni

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.