Söngkonan Janet Jackson hefur eignast sitt fyrsta barna, fimmtíu ára gömul. Janet er gift kaupsýslumanninum Wissam Al Mana og eignuðust þau dreng. Móður og barni heilsast báðum mjög vel. Drengurinn hefur fengið nafnið Eissa Al Mana. Samkvæmt tilkynningu sem fjölmiðlafulltrúi söngkonunnar sendi People gekk fæðingin vel. Í apríl tilkynnti Janet að hún ætlaði að fresta tónleikaferðalagi sínu til þess að einbeita sér að því að stofna fjölskyldu.
https://www.instagram.com/p/BBsx_Yaq-gC/?taken-by=janetjackson