Samband Kylie Jenner og rapparans Tyga hefur verið vægast sagt stormasamt en svo virðist sé allt í lagi hjá turtildúfunum um þessar mundir. Kylie var mynduð með nýtt húðflúr á dögunum, stafinn t. Hér fyrir neðan má sjá skjáskot af vefnum TMZ sem birtu fyrst myndir af húðflúrinu.
Er þetta þónokkur ástarjátning hjá raunveruleikastjörnunni en um jólin birti hún mynd af þeim undir jólatré með textanum „Það eina sem ég vil í jólagjöf ert þú.“ Tyga var nú þegar búinn að húðflúra nafnið „Kylie“ á handlegg sinn.
https://www.instagram.com/p/BNBgAPTBpZA/?taken-by=kyliejenner
Kylie er mikill trendsetter og hennar aðdáendur eru duglegir að elta hennar fatastíl, háraliti og förðunina. Spurning hvort einhverjir Kylie aðdáendur fylgi nú í fótspor hennar og setji upphafsstafinn í nafni kærastans eða kærustunnar á öklann á sér.