Femínismi er ekki lengur jaðarfyrirbæri. Í dag eru femínistafélög sprottin upp í flestum menntaskólum og meira að segja sumum grunnskólum. Komandi kynslóðir gera sér grein fyrir því að ójafnrétti kynjanna er tímaskekkja og þarf að útrýma. Hér eru nokkrir áhrifamiklir femínistar sem öllum áhugasömum er hollt að kynna sér.
„Ég er svört, femínisti, lesbía, móðir og skáld,“ sagði Audre Lorde (18.2.1934–17.11.1992) um sjálfa sig. Audre var róttæk baráttukona fyrir jafnrétti og mannréttindum. Hún þótti snillingur í að miðla heitum tilfinningum í skáldskap sínum, sem fjallaði að mestu um borgaraleg réttindi, femínisma og sjálfsmynd svartra kvenna, og hélt ekki aftur af reiði sinni í garð misréttis og kúgunar. Audre lést aðeins 58 ára að aldri úr brjóstakrabbameini.
Betty Friedan (4.2.1921–4.2.2006) var bandarískur rithöfundur, aktívisti og femínisti. Hún var leiðandi í kvenréttindabaráttunni í því sem kallað hefur verið önnur bylgja baráttunnar á 20. öldinni. Bók Betty, The Feminine Mystique, er af mörgum talin hafa ýtt þeirri bylgju af stað, en hún kom út 1963. Betty var einn stofnenda landssamtaka kvenna í Bandaríkjunum (National Organization for Women eða NOW), og var fyrsti formaður samtakanna sem höfðu að markmiði að leiðrétta stöðu kvenna í bandarísku samfélagi og tryggja algjört jafnrétti kynjanna. Betty lét til sín taka í stjórnmálum og barðist meðal annars fyrir því að banni við fóstureyðingum yrði aflétt.
Gloria Marie Steinem (f. 25.3.1934) er bandarískur femínisti, blaðakona og aktívisti. Hún varð fyrst þekkt á sjöunda áratugnum sem talskona femínísku bylgjunnar. Hún var dálkahöfundur fyrir New York Magazine og stofnaði síðar Ms. Magazine sem ennþá er gefið út. Gloria hefur lagt sérstaka áherslu á að berjast fyrir sýnileika kvenna í fjölmiðlum og stofnaði ásamt fleirum samtökin Women’s Media Center sem hefur það að markmiði. Gloria er virtur fyrirlesari, hefur ritað fjölda bóka, og hlotið fjöldann allan af viðurkenningum fyrir störf sín.
Bell Hooks (f. 25.9.1952), sem heitir reyndar Gloria Jean Watkins. Hún tók upp höfundarnafnið Bell Hooks til heiðurs langömmu sinni. Skrif hennar fjalla aðallega um tengsl kynþátta, kapítalisma og kyns – kúgun og stéttadrottnun. Hún hefur skrifað meira en 30 bækur, fjöldann allan af greinum, komið fram í heimildamyndum og er vinsæll fyrirlesari. Bell hefur skoðað, út frá póstmódernísku sjónarhorni, hvernig kynþáttur, stétt og kyn birtist í menntun, listum, sögu, kyntjáningu, fjölmiðlum og femínisma.
Naomi Klein (f. 8.5.1970) er kanadísk kvikmyndagerðakona, rithöfundur og aktívisti. Hún er þekkt fyrir pólitískar greiningar sínar og gagnrýni á kapítalisma og hnattvæðingu stórfyrirtækja. Þekktasta bók hennar er No Logo, þar sem hún fjallar um hvernig stórfyrirtæki misnota völd og peninga til dæmis með því að framleiða vörur sínar á fátækum svæðum. Naomi er oft sett á lista yfir áhrifamestu hugsuði okkar tíma.
-Ragnheiður Eiríksdóttir
Birtist fyrst í DV