fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024

Níu leiðir til að halda í rómantíkina

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 13. júlí 2016 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Bíddu, deyr rómantíkin ekki hjá öllum?“ spurði vinkona mín þar sem við sátum í grillboði hjá vinum sem virðast svei mér þá bálskotin eftir áratuga samband og að auki með fimm börn á grunn- og leikskólaaldri á heimilinu.

„Auðvitað er meiri háttar vinna að halda rómantíkinni á lífi,“ sagði vinur minn sem er búinn að vera kvæntur í tíu ár. „Einu sinni ræddum við um hvað myndi gerast ef við opnuðum sambandið. Sögðum hvort öðru frá þeim sem við myndum sofa hjá og því sem við myndum vilja prófa. Við gerðum aldrei neitt slíkt, en þetta skapaði stemningu og æsing á milli okkar sem entist í marga mánuði.“

Leiðirnar eru ýmsar og mismunandi aðferðir henta eflaust ólíkum pörum. Hér eru níu leiðir lesendum til innblásturs. Lifi rómantíkin!

1. Farið saman í sturtu
Þetta er eitthvað sem fólk gerir gjarnan í tilhugalífinu … en svo hættir það þessari „vitleysu“ og fer aftur að baða sig í einrúmi. Það er einfaldlega svo miklu skemmtilegra að baða sig saman. Ef sturtan rúmar ekki tvo, er að minnsta kosti hægt að plana baðtíma saman. Vera dálítið allsber, knúsast, þvo hvort öðru með sápulöðri og nudda. Líkamleg nánd sem leiðir ekki endilega til kynlífs er líka mikilvæg.

2. Verið tillitssöm í svefnherberginu
Nei, ég er ekki að tala um kynlífið, heldur svefninn. Góður nætursvefn er nefnilega forsenda þess að allt annað í lífinu geti gengið vel. Ef þú hrýtur mikið er það skylda þín að gera eitthvað í því máli – láta athuga hvort þú ert með kæfisvefn, eða kaupa eyrnatappa fyrir þann sem þú deilir bóli með. Ef annar aðilinn vill sofa í kulda og hinn í hita, er mikilvægt að komast að málamiðlun. Sama gildir um birtustig í herberginu. Verið sveigjanleg – sofið vel – elskið meira!

3. Knúsist og kelið
Kelerí, faðmlög og kossar sem leiða ekki til neins meira eru með því hollara sem pör geta tekið sér fyrir hendur. Snerting, sérstaklega faðmlög sem vara 20 sekúndur eða lengur, auka framleiðslu hamingjuhormóna í líkamanum. Þannig verðið þið bæði örlítið hamingjusamari eftir hvert faðmlag og hamingjusamt fólk er miklu flinkara í samböndum.

4. Planið matartímana saman
Matartímar eru stór hluti af lífi okkar. Sumir hafa reyndar grínast með að hjónaband sé ekki annað en tveir einstaklingar sem senda á milli sín „hvað eigum við að hafa í matinn?“-spurningunni þar til annað þeirra deyr. Reynið þá frekar að gera eitthvað skemmtilegt úr þessum hluta lífsins. Setjist niður og planið vikuna, skiptið með ykkur verkum, eldið saman og umfram allt njótið!

5. Hlæið saman
Þetta atriði ætti kannski að vera efst á listanum og feitletrað með hástöfum. Það er svo mikilvægt að hlæja saman – eiginlega það mikilvægt að ef þið gerið það ekki ættuð þið að endurskoða sambandið hið snarasta.

6. Gefið hvort öðru pláss
Þegar við verðum hluti af pari – biti í stærra púsluspili – er kannski aldrei mikilvægara að halda í sitt persónulega líf. Eitt af því yndislegasta sem hægt er að gera fyrir makann er að leyfa honum að vera einn heima. Já, bara heima, án þess að neinar kvaðir fylgi því. Reglulegar fjarvistir beggja aðila eru líka mikilvægar – þegar maður saknar verður svo gott að hittast aftur!

7. Rífist
Já! Það er svo miklu betra að ná gremju út í loftið í stað þess að byrgja hana inni. Það er líka fullkomlega eðlilegt að fólk rífist endrum og sinnum, þó að ástin sé heit og vináttan djúp. Rífist á réttlátan hátt og ekki nota það sem sagt er í hita leiksins gegn hvort öðru síðar.

8. Stundið mikið kynlíf
Saman og hvort í sínu lagi. Sjálfsfróun er nefnilega kynlíf líka – og ef þið eruð í opnu sambandi er um að gera að stunda kynlíf með öðru fólki. Verið ævintýragjörn og opin fyrir nýjum hugmyndum hvort frá öðru.

9. Farið á stefnumót
Skipuleggið samverustundir þar sem krakkar eru settir í pössun og öll verkefni hversdagsins á pásu. Það þarf ekki að vera dýrt eða flókið. Ísbíltúr eða gönguferð getur alveg verið rómantísk.

-Ragnheiður Eiríksdóttir
Birtist fyrst í DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Þjófagengi sem stelur frá skátunum hótaði hjólahvíslaranum – „Ég kem heim til þín“

Þjófagengi sem stelur frá skátunum hótaði hjólahvíslaranum – „Ég kem heim til þín“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Segja íslenskum fjölmiðlum að þegja og saka þá um falsfréttir

Segja íslenskum fjölmiðlum að þegja og saka þá um falsfréttir
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal og United munu berjast um sama manninn í sumar

Arsenal og United munu berjast um sama manninn í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Var Spánverjinn stálheppinn í gær? – Sjáðu myndirnar umtöluðu

Var Spánverjinn stálheppinn í gær? – Sjáðu myndirnar umtöluðu

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.