Framleiðendur Sesame Workshop, sem standa á bakvið stórvinsæla barnaþáttinn Sesame Street, hafa lagt fram kæru á hendur STX Entertainment kvikmyndafyrirtækisins vegna groddaralegrar brúðumyndar með gamanleikkonunni Melissu McCarthy í aðalhlutverki.
Samkvæmt heimildum E! News vilja ákærendur meina að brúðumyndin The Happytime Murders komi með ósmekklega tengingu við barnaþáttinn enda blótsyrði, eiturlyfjanotkun, vændi, ofbeldi og kynlíf til umfjöllunnar í kvikmyndinni.
Aðstandendur Sesame Workshop telja stiklu og umfjöllunarefni myndarinnar vera fyrir neðan allar hellur og fara fram á að kynningarherferðinni verði breytt.
Umrædd stikla var nýlega gefin út og má sjá hana að neðan.
Ákærendur eru áberandi ósáttir með slagorð stiklunnar „No Sesame, All Street“. Þeir taka fram að verjendur eigi ekki rétt á vörumerkinu Sesame Street og megi ekkert nota í tengslum við það. „Þeir (hjá STX) gefa út stiklu sem vísvitandi villar fyrir áhorfendum að Sesame sé tengt framleiðslu myndarinnar, styðji hana eða standi jafnvel að gerð hennar og eyðileggur þar af leiðandi fyrir vörumerkinu,“ segir í ákæru.
The Happytime Murders fjallar um brúðuspæjara sem herjar á fræga brúðuleikara úr gömlum sjónvarpsþáttum. Spæjarinn hefur áhyggjur af því að röðin komi að fyrrverandi kærustu hans og leggur hann allt að veði til að leysa ráðgátuna um morðin.
Forstöðumaður STX Films, Adam Fogelson, hefur varið kvikmyndina og sagt: „Þið vitið innst inni í hjörtum ykkar, að þegar Kermit froskur og Svínka fara heim saman á kvöldin og það eru hvorki myndavélar í gangi né börn nálægt, þá gerist eitthvað subbulegt.“