fbpx
Miðvikudagur 26.mars 2025
Fókus

Fjötrar valin besta íslenska glæpasagan

Jón Þór Stefánsson
Miðvikudaginn 10. júní 2020 16:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólveig Pálsdóttir hlaut í dag Blóðdropann 2020 fyrir skáldsögu sína, Fjötra, en verðlaunin eru veitt ár hvert fyrir bestu íslensku glæpasögu undanfarins árs. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Útgefandi bókarinnar er Salka. Metfjöldi glæpasagna voru tilnefndar í ár, 20 talsins. Hið íslenska glæpafélag stendur að verðlaununum og verðlaunabókin er framlag Íslands til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna, árið 2021. Dómnefnd skipuðu Páll Kristinn Pálsson, formaður, Helga Birgisdóttir og Kristján Atli Ragnarsson.

Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir:

„Niðurstaða dómnefndar er sú að Fjötrar eftir Sólveigu Pálsdóttur sé verðskuldaður sigurvegari að þessu sinni. Í sögunni fléttar Sólveig á frumlegan og öruggan hátt saman sögum af mannshvarfi, misnotkun og sjálfsskaða í spennandi frásögn sem litast af leyndarmálum fjölskyldna. Ljóst er frá fyrstu síðu að lesandi er í öruggum höndum höfundar sem hefur góð tök á öllum þráðum fléttunnar og hefur vandað til verks. Frásögn Sólveigar er í senn spennandi, áhugaverð, kímin og sorgleg. Afraksturinn er bók sem lætur engan ósnortinn.“

Fjötrar segir frá konu sem finnst látin í klefa sínum í fangelsinu á Hólmsheiði. Guðgeir og félagar hans rannsaka málið sem reynist hafa ótal þræði og teygja anga sína víða, alla leið til stóra skjálftans um aldamótin þar sem ungur maður hvarf sporlaust. Lögreglan stendur frammi fyrir stórum spurningum og kynnist hversu langt fólk er tilbúið að ganga til að viðhalda ákveðinni mynd af sér út á við og hvers fjölskyldur eru megnugar til að vernda leyndarmál sín.

Sólveig Pálsdóttir er leikkona og starfaði lengi við leiklist og kennslu í framhaldsskóla áður en hún sneri sér alfarið að ritstörfum. Fjötrar er fimmta bók Sólveigar Pálsdóttur. Bækur Sólveigar hafa verið tilnefndar til Blóðdropans, þýddar á þýsku og sem stendur vinna breska framleiðslufyrirtækisins Corylus að gerð sjónvarpsþátta eftir síðustu bók hennar, Refnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – „Þegar þú breytist í bimbó í eina nótt og vilt ekki að henni ljúki“

Vikan á Instagram – „Þegar þú breytist í bimbó í eina nótt og vilt ekki að henni ljúki“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Jón rifjar upp áfallið sem breytti lífi föður hans – „Einhver henti sér fyrir bílinn hjá honum“

Jón rifjar upp áfallið sem breytti lífi föður hans – „Einhver henti sér fyrir bílinn hjá honum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sóldís litin hornauga fyrir að vera yngst – „Ég þurfti bara að leggja harðar að mér til þess að fá þessa virðingu sem hinar stelpurnar fengu“

Sóldís litin hornauga fyrir að vera yngst – „Ég þurfti bara að leggja harðar að mér til þess að fá þessa virðingu sem hinar stelpurnar fengu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Neitaði að leyfa grátandi barni að fá flugsæti sitt – Málið átti eftir að hafa gífurlegar afleiðingar

Neitaði að leyfa grátandi barni að fá flugsæti sitt – Málið átti eftir að hafa gífurlegar afleiðingar
Fókus
Fyrir 6 dögum

Afi Birgittu Lífar selur húsið í Garðabænum – „Full size myndin af mér fylgir hæstbjóðanda“

Afi Birgittu Lífar selur húsið í Garðabænum – „Full size myndin af mér fylgir hæstbjóðanda“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Margir reyna en hafa ekki erindi sem erfiði – Svona kemstu inn á umtalaðasta klúbb Berlínar

Margir reyna en hafa ekki erindi sem erfiði – Svona kemstu inn á umtalaðasta klúbb Berlínar