Næsta miðvikudag verður fyrsti leshringur Söguhrings kvenna í Menningarhúsinu í Gerðugerði.
Í samstarfi við Ós Pressuna er öllum konum boðið að koma og mynda leshring að frumkvæði grasrótarinnar. Hópurinn ákveður í sameiningu hvaða bækur skal lesa, hvort ákveðið þema verður, hvaða staði á að heimsækja, hvort rithöfundum bókanna verður boðið að koma í leshringinn eða hvort horft verður á kvikmyndir sem gerðar hafa verið eftir bókunum.
Þetta verður opinn og óformlegur leshringur sem mun byggjast á samfélagi kvenna með það að markmiði að fagna bókum og bókmenntum.
Fjöldinn er takmarkaður við 15 konur og enn eru nokkur pláss laus. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á eftirfarandi netfang: ospressan@gmail.com
Lesa má nánar um viðburðinn hér.