Viðburðaríku 26. Alþjóðlega orgelsumri er lokið. 38 eftirminnilegir tónleikar í Hallgrímskirkju á rúmlega tveimur mánuðum og aðsóknin á hátíðina hefur líklega aldrei verið jafn góð. Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, mun þó halda áfram að gleðja tónleikagesti með söng sínum næstu tvo miðvikudaga.
Miðvikudaginn 22. ágúst kl. 12 syngur hinn margrómaði kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, íslenskar og erlendar kórperlur eftir Jón Ásgeirsson, Jón Nordal, Sigvalda Kaldalóns, Händel, Byrd, Sigurð Sævarsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Hjálmar H. Ragnarsson. Tónleikagestum er boðið í kaffi og spjall við meðlimi kórsins að tónleikunum loknum. Miðaverð kr. 2500.
Miðasala í Hallgrímskirkju opnar klukkutíma fyrir tónleikana en einnig má kaupa miða á midi.is.
Efnisskrá:
Vorvísa Texti: Halldór Laxness 1902‒1998
Músik: Jón Ásgeirsson *1928
Smávinir fagrir Texti: Jónas Hallgrímsson 1807‒1845
Músik: Jón Nordal *1926
Á Sprengisandi Texti: Grímur Thomsen 1820‒1896
Músik: Sigvaldi Kaldalóns 1881‒1946
Úts.: Jón Ásgeirsson
Dagur er nærri Kristján Valur Ingólfsson, *1947
Músik: George Fridrich Handel 1675‒1759
Ave Verum Corpus Texti: Latneskur hymni
Músik: Willian Byrd 1540‒1623
Nunc dimittis Texti: Luk. 2. 29–32
Músik: Sigurður Sævarsson *1963
Heyr, himna smiður Texti: Kolbeinn Tumason 1173–1208
Músik: Þorkell Sigurbjörnsson 1938–2013
Stóðum tvö í túni Texti: Þjóðvísa
Músík: Ísl. Þjóðlag
Úts.: Hjálmar H. Ragnarsson *1952
Grafskrift Texti: Þjóðvísa
Músík: Ísl. þjóðlag
Úts.: Hjálmar H. Ragnarsson
Schola cantorum, kammerkór Hallgrímskirkju, hefur frá upphafi hlotið mikla athygli fyrir fágaðan og tæran söng sinn. Kórinn var valinn „Tónlistarflytjandi ársins 2016” á Íslensku tónlistarverðlaununum í mars 2017 og hefur unnið til verðlauna í erlendum keppnum og komið fram á tónleikum í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Ítalíu, Spáni, Þýskalandi, Frakklandi, Japan, Sviss og Bandaríkjunum. Schola cantorum var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2006, tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2007 og Íslensku tónlistarverðlaunanna 2013. Kórinn hefur frá upphafi leikið mikilvægt hlutverk í íslensku tónlistarlífi og frumflutt verk eftir fjölda íslenskra tónskálda auk þess að flytja tónlist allra stíltímabila með og án hljóðfæraundirleiks, m.a. í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Alþjóðlegu barokksveitina í Hallgrímskirkju (áður Den Haag), Björk, Sigurrós o.fl. Kórinn kom einnig fram á 5 tónleikum á tónlistarhátíðinni Reykjavík Festival í Walt Disney Hall í Los Angeles í apríl 2017, þ.s. söngur kórsins hlaut einróma lof í allri umfjöllun stórblaða svo sem New York Times, LA Times og fleira. Stjórnandi kórsins frá upphafi er Hörður Áskelsson.