Listakonan Elsa Nielsen opnar listasýningu fimmtudaginn 23. ágúst næstkomandi í Gallerí Gróttu.
Elsa Nielsen er fædd í Reykjavík árið 1974. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 1999 og rekur nú sína eigin hönnunarstofu. Strax á námsárum sínum fór Elsa að sýna verk sín og á nú að baki fjölda sam- og einkasýninga á sviði málaralistar. Elsa var útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness 2016.
Á sviði málaralistarinnar hefur Elsa einkum einbeitt sér að því að mála uppstækkaðan grafískan myndflöt á striga með akrýllitum. Verkunum ljær hún dýpt með því að byggja flötinn upp með sparsli og sandi. Þó málverk Elsu standi sjálfstæð sýna þau glöggt hvernig henni tekst að færa margra ára reynslu og kunnáttu með grafíska miðlun yfir á annað stig.
Díll, depill eða pixill (einnig sjaldan kallað tvívíð myndeind) er minnsta eining í stafrænni mynd, og er alltaf einlit.
Sýningin verður opin kl. 10-19 mánudaga til fimmtudaga, kl. 10-17 föstudaga og kl. 11-14 laugardaga og stendur til 23. september 2018.