Um helgina flutti tónlistarparið Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs dagskrá með uppáhaldsástarlögum þeirra, Ástin er allskonar, í Hannesarholti og á Geira Smart. Lögin koma úr öllum áttum og fjalla um ástina í ýmsum myndum.
Með þeim voru söngdívurnar Bjarni Snæbjörnsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Hansa).
Í myndbandinu hér að neðan má sjá Siggu Eyrúnu og Bjarna á æfingu fyrir tónleikana þar sem þau taka lagið This is Me úr kvikmyndinni The Greatest Showman.
Lagið sem sungið var af Keala Seattle í kvikmyndinni var tilnefnt til bæði Golden Globe og Óskarsverðlauna í ár og vann þau fyrrnefndu.
Og hér er útgáfan úr kvikmyndinni.
Myndbönd frá tónleikunum má sjá á Facebooksíðu Hannesarholts.