The Room er þekkt fyrir að vera ein besta „versta-mynd“sem gerð hefur verið.
Hún kom út árið 2003 og var sýnd við einstaklega dræmar viðtökur í Los Angeles (flestir gestir vildu fá endurgreitt áður en hálftími var liðinn) þar sem ungir kvikmyndaáhugamenn rákust á hana og sáu húmorinn í hörmungunum. Þar draga áhorfendur hana sundur og saman í háði á sama tíma og þeir undra sig á því hvernig hægt er að gera svona góða vonda mynd.
Bíó Paradís býður upp á sannkallaða föstudagspartísýningu í kvöld kl. 20.
Lofað er truflaðri skemmtun, það verða fullt af plastskeiðum á staðnum og truflað andrúmsloft!