Það er ekki á hverjum degi sem stórstjarna á borð við Juliu Roberts birtist í sjónvarpsþáttum, en í haust verða þættirnir Homecoming með henni í aðalhlutverki frumsýndir á Amazon.
Homecoming er sálfræðitryllir leikstýrður af Sam Esmail, leikstjóra Mr. Robot, gert eftir podcasti Eli Horowitz og Micah Bloomberg. Roberts leikur Heidi Bergman, sem vinnur hjá Homecoming Transitional Support Center, miðstöð sem hjálpar hermönnum að aðlagast borgaralegu lífi.
Walter Cruz, leikinn af Stephan James, er einn þessara hermanna og ákafur í að hefja næsta kafla í lífi sínu. Yfirmaður Bergman er Colin Belfast, leikinn af Bobby Cannavale, metnaðargjörnum athafnamanni, en ákvarðanir hans benda til að að vafasamar ástæður búi að baki.
Fjórum árum síðar hefur Bergman byrjað nýtt líf og býr hjá móður sinni, leikin af Sissy Spacek, og starfar sem þjónustustúlka í smábænum sem þær búa í. Fulltrúi frá Varnarmálaráðuneytinu, leikinn af Shea Whigham, kemur til hennar með fyrirspurn umaf hverju hún yfirgaf sitt fyrra starf. Smám saman áttar Heidi sig á að það er allt önnur saga á bak við en sú sem hún hefur sagt sjálfri sér.