Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri Vikunnar: „Ég get ekki verið bókarlaus en núna er ég að lesa Þjáningarfrelsið eftir þær Auði Jónsdóttur, Báru Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur. Það er einstaklega áhugavert og spennandi að lesa um upplifun annarra blaðamanna af starfinu og mjög upplýsandi að átta sig á ýmsu er á sér stað bak við tjöldin. Bókin er mjög skemmtilega skrifuð og uppsett. Á náttborðinu liggur einnig Lífsnautnin frjóa eftir Anne B. Ragde mikinn uppáhaldshöfund en þetta er lokahnykkurinn á bókaflokknum um Neshov-fjölskylduna. Svo er ljóðabókin Jökulhvörf eftir Kára Tulinius í stöðugum lestri um þessar mundir.“