Sýningin Himnaríki og helvíti, sem frumsýnd var á Stóra sviði Borgarleikhússins í janúar síðastliðnum, fékk flestar Grímur þegar verðlaun sviðslista voru veitt í kvöld. Leikritið, sem er eftir Bjarna Jónsson, er byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar, bókunum Himnaríki og helvíti, Harmur englanna og Hjarta mannsins, og var Egill Heiðar Anton Pálsson leikstjóri þess.
Himnaríki og helvíti fékk alls sjö verðlaun, fyrir sýningu ársins, Þórður Orri Pétursson fyrir lýsingu ársins, Egill Ingibergsson fyrir leikmynd ársins, Helga I. Stefánsdóttir fyrir búninga ársins, Hjálmar H. Ragnarsson fyrir tónlist ársins, Egill Heiðar Anton Pálsson sem leikstjóri ársins, Bjarni Jónsson og Jón Kalman Stefánsson fyrir leikrit ársins.
Þar á eftir kom sýningin Fólk, staðir og hlutir sem frumsýnd var á Litla sviði Borgarleikhússins í apríl síðastliðnum. Leikritið er eftir Duncan MacMillan og leikstjóri þess var Gísli Örn Garðarsson. Sýningin fékk tvenn verðlaun, Sigrún Edda Björnsdóttir sem leikkona ársins í aukahlutverki og Nína Dögg Filippusdóttir sem leikkona ársins í aðalhlutverki.
Önnur sýning Borgarleikhússins sem fékk verðlaun var 1984, þar sem Valur Freyr Einarsson fékk verðlaun sem leikari ársins í aukahlutverki.
Sýningar Borgarleikhússins fengu flest Grímuverðlaun, alls tíu talsins.