Þriðja vika alþjóðlegs orgelsumars Hallgrímskirkju hefst á morgun.
Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, syngur á öðrum kórtónleikum orgelsumarsins miðvikudaginn 27. júní kl. 12. Þar gefur að heyra verk eftir Jón Nordal, Sigvalda Kaldalóns, Byrd, Mendelssohn, Sigurð Sævarsson, Bruckner og Händel í bland við íslensk þjóðlög. Tónleikagestum er boðið að þiggja kaffisopa að tónleikunum loknum, spjalla við söngvarana og kynnast starfi kórsins. Miðaverð 2.500 kr.
Á fyrstu orgeltónleikum vikunnar, fimmtudaginn 28. júní kl. 12 leikur organisti Kálfatjarnarkirkju, Elísabet Þórðardóttir, sem nýlokið hefur einleikaraáfanga frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Á efnisskránni er hin dásamlega 5. orgelsónata Mendelssohns, hið þekkta Andante cantabile eftir Widor auk verka eftir Gigout og Vierne (Carillon de Westminister). Miðaverð 2.000 kr.
Laugardaginn 30. júní kl. 12 er komið að fyrstu alþjóðlegu orgelstjörnu sumarsins, Irenu Chřibková frá Tékklandi, sem er aðalorganisti við hina frægu Basilíku Heilags Jakobs í miðborg Prag. Irena mun leika verk eftir Bernando Storace, Jean-Marie Plum, Konsert í h-moll eftir Walther og Marche religieuse eftir Guilmant sem byggist á einum af þekktu kórköflunum í óratóríunni Messías eftir Handel. Miðaverð 2.000 kr.
Irena Chřibková verður aftur á ferðinni sunnudaginn 1. júlí kl. 17 með klukkutíma orgelveislu. Þá munu hljóma verk eftir Balbastre, Mac-Master, Josef Suk, Petr Eben auk Tokkötu og fúgu í d-moll eftir Bach og Fantasíu um sinfóníska ljóðið Vyšehrad (Hái kastali) eftir Josef Klička, en verkið byggir á samnefndum kafla úr Föðurlandi mínu eftir Smetana. Miðaverð 2.500 kr.
Miðasala í Hallgrímskirkju hefst klukkutíma fyrir hverja tónleika en einnig má kaupa miða á midi.is.
Dagskrá vikunnar má sjá í heild sinni hér fyrir neðan:
Miðvikudaginn 27. júní kl. 12.00: Schola cantorum
Efnisskrá:
Íslenskt þjóðlag, úts. Róbert A. Ottósson Vinaspegill
Íslenskt þjóðlag, úts. Hjámar H. Ragnarsson Stóðum tvö í túni
Jón Nordal *1926 Smávinir fagrir
Sigvaldi Kaldalóns 1881-1946 Á Sprengisandi
Úts.: Jón Ásgeirsson
William Byrd 1540-1623 Ave verum corpus
Sigurður Sævarsson *1963 Nunc dimittis
Felix Mendelssohn-Bartholdy 1809-1847 Herr, nun lässest du
Anton Bruckner 1824-1896 Locus iste
Georg F. Händel 1685-1759 Dagur er nærri
Schola cantorum, kammerkór Hallgrímskirkju, hefur frá upphafi hlotið mikla athygli fyrir fágaðan og tæran söng sinn. Kórinn var valinn „Tónlistarflytjandi ársins 2016” á Íslensku tónlistarverðlaununum í mars 2017 og hefur unnið til verðlauna í erlendum keppnum og komið fram á tónleikum í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Ítalíu, Spáni, Þýskalandi, Frakklandi, Japan, Sviss og Bandaríkjunum. Schola cantorum var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2006, tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2007 og Íslensku tónlistarverðlaunanna 2013. Kórinn hefur frá upphafi leikið mikilvægt hlutverk í íslensku tónlistarlífi og frumflutt verk eftir fjölda íslenskra tónskálda auk þess að flytja tónlist allra stíltímabila með og án hljóðfæraundirleiks, m.a. í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Alþjóðlegu barokksveitina í Hallgrímskirkju ( áður Den Haag), Björk, Sigurrós o.fl. Kórinn kom einnig fram á 5 tónleikum á tónlistarhátíðinni Reykjavík Festival í Walt Disney Hall í Los Angeles í apríl 2017, þ.s. söngur kórsins hlaut einróma lof í allri umfjöllun stórblaða svo sem New York Times, LA Times o.fl. Stjórnandi kórsins frá upphafi er Hörður Áskelsson.
Fimmtudaginn 28. júní kl. 12: Elísabet Þórðardóttir, organisti Kálfatjarnarkirkju
Efnisskrá:
Felix Mendelssohn Bartholdy 1809‒1847 Sónata op. 65, nr. 5
Andante, Andante con moto, Allegro
Eugène Gigout 1844‒1925 Tokkata
Charles Marie Widor 1845‒1937 Andante cantabile
Úr / From: Orgelsinfónía nr. 4 op. 13/4
Louis Vierne 1870‒1937 Carillon de Westminster op. 54 nr. 6
Úr / From: Pieces de fantasie
Elísabet Þórðardóttir lauk burtfararprófi í píanóleik frá Nýja tónlistarskólanum árið 2001 og voru kennarar hennar þar Ragnar Björnsson og Rögnvaldur Sigurjónsson. Árin 2001–2004 lagði hún stund á framhaldsnám í píanóleik við Musikhochschule Luzern í Sviss. Elísabet hóf nám við Tónskóla þjóðkirkjunnar árið 2012 og lauk þaðan kantorsprófi í maí 2017 og einleikaraáfanga vorið 2018 undir handleiðslu Björns Steinars Sólbergssonar. Hún hefur starfað sem píanókennari og undirleikari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar síðan 2006, verið organisti Kálfatjarnarkirkju frá 2012 og meðfram því organisti í hlutastarfi við Laugarneskirkju frá 2017.
Föstudaginn 30. júní kl. 12: Irena Chřibková, organisti Basilíku Heilags Jakobs í Prag
Efnisskrá:
Bernardo Storace 1637‒1707 Ballo della battaglia
Johann Gottfried Walther 1684‒1748 Konsert í h-moll
Umr./Trans.: Joseph Meck 1690‒1758 Allegro – Adagio – Allegro
Jean-Marie Plum 1899‒1944 Theme varié
Alexandre Guilmant 1837‒1911 Marche religieuse
við stefið / to the theme Lift Up Your Heads
úr / from Messías eftir / by G.F. Händel
Sunnudaginn 1. júlí kl. 17: Irena Chřibková, organisti Basilíku Heilags Jakobs í Prag
Efnisskrá:
Claude Balbastre 1724‒1799 Prelúdía og fúga í d-moll
Georges Mac-Master 1862‒1898 Offertoire, op. 43
Toccata í A-dúr, op. 67
Josef Suk 1874‒1935 Meditation on Saint Wenceslas
Úts./Trans: František Picka 1883‒1918 chorale op. 35
Petr Eben 1929-2007 Stúdentasöngvar og Sálumessa
Student Songs og Requiem
úr Orgelverkinu um Faust / from the organ cycle Faust
Johann Sebastian Bach 1685‒1750 Tokkata og fúga í d-moll (dórísk), BWV 538
Josef Klička 1855‒1937 Fantasía um sinfóníska ljóðið
Vyšehrad (Hái kastali),
Fantasy on the symphonic poem “Vyšehrad” (High Castle),
I part of My Fatherland by Bedřich Smetana. op. 33/1
Irena Chřibková er aðalorganisti Basilíku Heilags Jakobs í miðborg Prag. Þar hefur hún lagt grunninn að mörgum kirkjutónleikaröðum, m.a. Alþjóðlegri orgelhátíð heilags Jakobs sem er talin með fremstu tónlistarhátíðum í Evrópu. Þá eru sunnudagstónleikar hennar „Hálftíma orgeltónlist í basilíkunni“ mjög vinsælir.
Irena Chřibková stundaði nám við Kroměříž Tónlistarskólann hjá K. Pokora, við Listaakademíuna í Prag hjá próf. M. Šlechta og í París hjá Susan Landale. Góð frammistaða í alþjóðlegum orgelkeppnum lagði grunninn að vinsældum hennar sem konsertorganista og hún hefur komið fram víða um heim auk þess að vinna með leiðandi tónlistarmönnum, kórum og hljómsveitum.
Tónverkaskrá Irenu nær frá barokktímabilinu til nútímans með sérstaka áherslu á franska orgeltónlist, verk J. S. Bachs og tékkneska tónlist, m.a. eftir fyrirrennara sína við orgelið í basilíkunni. Hún er einnig virtur kennari í orgelleik í heimalandi sínu.