Félagsskapurinn Smásögur hefur sent frá sér bókina Ástarsögur 2018. Þetta er sjöunda bókin sem félagið gefur út. Í bókinni er að finna 13 ástarsögur eftir 11 höfunda. Höfundarnir eru misreynslumiklir, sumir hafa sent frá sér eigin bækur, til dæmis skáldsögur, en flestir hafa þeir áður birt smásögur í smásagnabókum félagsins.
Bókin Ástarsögur 2018 inniheldur fjölbreyttar sögur um ástina frá ýmsum hliðum og er áhugaverð sumarlesning. Til að krydda lesninguna eru síðan nokkrar smellnar örsögur í viðauka.
Höfundar sagnanna eru eftirtaldir:
Auður Hafsteinsdóttir
Árný Stella Gunnarsdóttir
Einar Leif Nielsen
Elísabet Kjerúlf
Hákon Gunnarsson
Hildur Enóla
Hrund Guðmundsdóttir
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir
Jóhanna Kristín Atladóttir
Róbert Marvin
Rósa Grímsdóttir
Ástarsögur 2018 er til sölu í öllum helstu bókaverslunum