Svartlyng er sótsvartur hvítþveginn gamanleikur eftir Guðmund Brynjólfsson sem verður frumsýndur í Tjarnarbíó föstudaginn 21. september kl. 20. Verkið er í samstarfi við Tjarnarbíó og er leikstýrt af Bergi Ingólfssyni.
Í Lagadeild Háskóla Íslands er þrískipting valdsins útskýrð með þessum hætti: „Svartlyng-ættin á dómstólana, Svartlyng-ættin á stjórnarráðið og Svartlyng-ættin á löggjafarþingið.“ Hinu er sleppt, að Flokkurinn mannar öll embætti í nafni Svartlyngs-ættarinnar enda á hún Flokkinn.Þegar dregur til tíðinda í stjórnarráðinu og ríkisstjórn Svartlynga riðar til falls ákveður hæstvirtur ráðherra Hermann Svartlyng að ráða til sín gluggaþvottamann til að sýna að það er jú allt uppi á borðum og allt gjörsamlega gegnsætt í ráðuneytinu sem hann stýrir.
En það er ekki nóg – til að tryggja að spillingin nái ekki að brjótast upp á yfirborðið verða hausar og hendur að fjúka – því Svartlyngættin passar upp á sitt … en ekki sína.
Svartlyng er glænýr sprenghlægilegur og blóðugur íslenskur farsi.
Svartlyng er fimmta verk GRAL en leikhópurinn hefur áður sett upp 21 manns saknað, Grímuverðlaunaverkið Með horn á höfði, Endalok alheimsins og Eiðurinn og eitthvað eftir Guðberg Bergsson.
Höfundur: Guðmundur Brynjólfsson; leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson; leikarar: Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Benedikt Gröndal, Thor Tulinius, Emilía Bergsdóttir og Valgerður Rúnarsdóttir; leikmynda- og búningahönnun: Eva Vala Guðjónsdóttir; ljósahönnun: Magnús Arnar Sigurðsson og Hafliði Emil Barðason; sviðshreyfingar: Valgerður Rúnarsdóttir; framkvæmdastjórn: Sólveig Guðmundsóttir; kynningarmál: Alexía Björg Jóhannesdóttir; sviðstjórn: Hafliði Emil Barðason.