fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Fókus

Klara býður upp á hádegisleiðsögn um SKÚLPTUR

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 12. september 2018 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á dag kl.12.15 verður boðið upp á hádegisleiðsögn með Klöru Þórhallsdóttur um sýninguna SKÚLPTÚR/SKÚLPTÚR sem nú stendur yfir í Gerðarsafni.

Sköpunarkraftur og tilraunastarfsemi Gerðar Helgadóttur er leiðarstef í allri starfsemi Gerðarsafns og býður safnið samtímalistamönnum að ganga inn í sýningu Gerðar Helgadóttur undir hatti sýningarraðarinnar SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR. Með því er gerð tilraun til að draga fram skúlptúrinn í samtímanum, ekki einungis sem mikilvægum hluta listasögunnar heldur einnig sem lifandi sjónrænu tungumáli samtímalistarinnar.

Sýningarröðin fer fram í þriðja sinn í ár, en henni er ætlað að heiðra Gerði og framlag hennar til íslenskrar höggmyndalistar um leið og dregnar eru saman tengingar við hreyfingar í samtímaskúlptúr. Listamennirnir Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir, Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir, Steinunn Önnudóttir og Styrmir Örn Guðmundsson taka þátt í sýningarröðinni SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR 2018.

Menning á miðvikudögum er viðburðadagskrá í hádeginu í hverri viku og fer ýmist fram í Gerðarsafni, Héraðsskjalasafni, Salnum, Náttúrufræðistofu eða Bókasafni Kópavogs.

Dagskráin Menning á miðvikudögum er öllum opin og er aðgangur ókeypis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikarinn steinrunninn á meðan myndband af eftirmála voðaskotsins var spilað

Leikarinn steinrunninn á meðan myndband af eftirmála voðaskotsins var spilað