Lof mér að falla mun taka þátt í World Cinema hluta Busan – stærstu kvikmyndahátíðar Asíu sem fram fer í Suður Kóreu 4.- 13.október næstkomandi.
Þetta er Asíu frumsýning myndarinnar sem leikstýrt er af Baldvin Z. Lof mér að falla verður hinsvegar heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto á morgun 6. september og hér á landi daginn eftir.
Myndin var forsýnd í gær í Háskólabíói fyrir fullu húsi gesta og sögðu margir þeirra að myndin væri skylduáhorf.
Myndin er nú þegar farin að fá glimrandi dóma en fyrsti 5 stjörnu dómurinn er kominn frá Kanada:
„Based on interviews with the families of drug-addicted teens, the screenplay by Birgir Orn Steinarsson and Baldvin Z, yields one of the most shocking, compelling and profoundly moving films ever made about addiction. The four actresses playing these two women over several decades provide work that is nothing less than stellar. Running the gamut of emotions and actions, this is extraordinary work. It’s impossible not to be moved to tears throughout the entire film. This is a great movie! Baldwin Z’s direction is masterful and uncompromising. As a sidenote, I watched the movie with my 17-year-old daughter. She was utterly transfixed and when it was over, she declared: „Dad, I’ve never seen a movie about kids like this in my whole life that was so true.“ For me, I can think of no higher praise.“
DV tekur í sama streng í sínum dómi um myndina og gefur henni 4,5 stjörnu.