fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Fókus

Júníus Meyvant gefur út High Alert – Ný plata væntanleg í nóvember

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 4. september 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftir vel heppnaða fyrstu útgáfu sína árið 2016 og margar tónleikaferðir um Evrópu og Bandaríkin snýr Júníus Meyvant aftur með nýja breiðskífu, Across The Borders, sem kemur út 9. nóvember.

Across The Borders var hljóðrituð hér á landi í Hljóðrita í Hafnarfirði en Guðmundur Kristinn Jónsson (Kiddi Hjálmur) var á tökkunum og sá um hljóðblöndun.

Fyrsta lagið sem við fáum að heyra af nýju plötunni heitir High Alert og er það nú þegar komið á tónlistarveitur. Hér er á ferðinni afar upplífgangi síðsumar smellur sem sýnir nýja hlið á Júníusi.

„Upphafið að þessu lagi hófst þegar ég var að gutla á gítarinn við trommulúppu úr gömlu hljómborði. Út kom þetta gítarriff og þetta rokklag. Síðar bættist við þessi 70’s kvikmyndabrass lína,“ segir Júníus.

Júníus Meyvant mun koma fram á Iceland Airwaves hátíðinni í nóvember. Þá er einnig  á dagskrá að kynna nýju plötuna hér heima sem ytra en stærri tónleikaferðir hans munu ekki hefjast fyrr en snemma á næsta ári.

Júníus Meyvant. Mynd: Sigríður Unnur.

ACROSS THE BORDERS LAGALISTI:
1. Lay Your Head
2. Love Child
3. High Alert
4. Holidays
5. Across The Border
6. Let It Pass
7. New Waves
8. Carry On With Me
9. Punch Through The Night
10. Draw The Line
11. Until The Last Minute

Tónlistarmaðurinn og Vestmanneyingurinn Unnar Gísli Sigurmundsson hefur samið og gefið út tónlist sem Júníus Meyvant í allnokkur ár.

Unnar ólst upp á heimili á Heimaey þar sem trú og tónlist var í hávegum höfð og náttúran í eynni var leikvöllur hans á uppvaxtarárunum.  Sem ungur drengur varði hann mestum tíma sínum í að gera kúnstir á hjólabretti og mála myndir til þess að fá sína útrás.  Snemma varð ljóst að Unnar væri orkumikið barn og á köflum sérvitur og hafði mikla þörf til þess að tjá sig.  Reglulega átti hann samtal við sjálfan sig um hvort hann ætti að beina orkunni í átt að tónlist en hvatvísi hans og frjáls hegðun olli því að honum var vísað úr tónlistarskóla.  Á unglingsárum voru allir draumar hans um að verða tónlistarmaður víðs fjarri og orka hans fór í aðra hluti.

Um tvítugt byrjaði Unnar að glamra á útjaskaðan gítar sem hann fann á heimili foreldra sinna.  Loksins fann hann sína réttu fjöl með gítarspilinu sem hjálpaði honum að róa ólguna innra með sér og smám saman jókst næmni hans fyrir lagasmíðum og fallegum laglínum.  Sköpunarkrafturinn fór á flug og um árabil spilaði Unnar með hljómsveit sem fullnægði ekki þörfum hans og ákvað hann að gera sína eigin tónlist undir nafninu Júníus Meyvant.

Þjóðlagatónlist Júníusar Meyvant er hjartnæm, hlý og kunnugleg og er hinn óheflaði Unnar skammt undan.   Hljóðheimur Júníusar er stór og samansettur af mjúkri rödd, lokkandi gítarspili, þéttum hrynjanda, lúðrablæstri, hljómborðum og mellotron.   Þá Sam Cooke, Charles Bradley, The Rolling Stones og fleiri telur Unnar sem sína áhrifavalda sem nú hefur gefið út eina breiðskífu og eina þröngskífu.

Árið 2014 gaf Unnar út fyrstu smáskífu sína, Color Decay, hjá Record Records.  Smáskífan hitti strax í mark á Íslandi og hlaut sömuleiðis lof hjá erlendum miðlum á borð við KEXP, NPR og Gaffa.  Ári seinna hlaut Unnar íslensku tónlistarverðlaunin fyrir bestu smáskífuna og nýliða ársins.  Með góðan meðbyr í farteskinu fóru Júníus og meðspilarar hans í vel heppnaðar tónleikaferðir til Evrópu og Bandaríkjanna sem innihéldu tónleika á Hróarskeldu og Bumbershoot í Seattle.

Árið 2018 kláraði Júníus aðra breiðskífu sína, Across The Borders með upptökustjóranum Guðmundi Kristni Jónssyni sem er hvað þekkastur fyrir störf sín með Hjálmum, Ásgeiri Trausta og Erlend Oye.   Það er Record Records sem sér um útgáfu plötunnar en hún kemur út 9. nóvember næstkomandi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ragnar fékk áfall þegar vaktfélagi hans svipti sig lífi – „Hann bjargaði mörgum mannslífum, af hverju gat ég ekki bjargað hans?“

Ragnar fékk áfall þegar vaktfélagi hans svipti sig lífi – „Hann bjargaði mörgum mannslífum, af hverju gat ég ekki bjargað hans?“
Fókus
Í gær

Raunveruleikastjarna birti sláandi mynd – Hefur nánast eytt aleigunni að komast til botns í þessu

Raunveruleikastjarna birti sláandi mynd – Hefur nánast eytt aleigunni að komast til botns í þessu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hawk Tuah-gellan í klandri út af rafmyntabraski – „Þú stalst af mér ævisparnaðinum“

Hawk Tuah-gellan í klandri út af rafmyntabraski – „Þú stalst af mér ævisparnaðinum“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Íslensk móðir skráði sig á Tinder og fékk áfall vegna þess sem hún sá: „Mér finnst þetta svo hræðilega rangt“

Íslensk móðir skráði sig á Tinder og fékk áfall vegna þess sem hún sá: „Mér finnst þetta svo hræðilega rangt“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Teddi náði botninum eftir að sérsveitin handtók hann í húsgagnaverslun

Teddi náði botninum eftir að sérsveitin handtók hann í húsgagnaverslun
Fókus
Fyrir 4 dögum

Svava Kristín lenti í slysi á unglingsaldri – „Ég get ekki orðið hlaupari en ég get gert margt annað“

Svava Kristín lenti í slysi á unglingsaldri – „Ég get ekki orðið hlaupari en ég get gert margt annað“