Heimildarmyndin Whitney: The untold story. For the First time“ er frumsýnd á föstudag í Bíó Paradís í samstarfi við útvarpsstöðina K100.
Óskarverðlaunaleikstjórinn Kevin MacDonald leikstýrir myndinni, þar sem varpað er nýju ljósi á líf og feril Whitney sem átti sér enga líka og heillaði milljónir manna út um allan heim, þrátt fyrir að hún sjálf þyrfti að berjast við að ná sáttum við sína eigin fortíð sem oft hafði verið þyrnum stráð.
Þessi einstaka heimildamynd um Whitney Houston er afar persónuleg frásögn sem skefur ekkert utan af lífi hennar og fjölskyldunnar og kafar mun dýpra en innsýn blaðafyrirsagna hefur veitt okkur hingað til. Whitney Houston sló fleiri met í tónlistarheiminum en nokkur önnur söngkona í sögunni, þar fyrir utan lék hún einnig í fjölmörgum vinsælum kvikmyndum og flestir muna vel eftir henni í The Bodyguard á móti Kevin Costner þar sem hún lék vinsæla poppstjörnu.
Heimildamyndin var heimsfrumsýnd utan keppni á Cannes kvikmyndahátíðinni 2018 og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda, þar að auki hlaut hún verðlaunin besta myndin í flokki heimildamynda í fullri lengd á nýafstaðinni alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Edinborg í Skotlandi.