Miðvikudaginn 22. ágúst kemur út skáldsagan Drottningin á Júpíter eftir Júlíu Margréti Einarsdóttur. Bókin er þriðja bók höfundar en áður hefur hún gefið út nóvelluna Grandagallerí og ljóðabókina Jarðarberjatungl.
Júlía Margrét hefur lokið MA námi í ritlist við HÍ og MFA í handritagerð við New York Film Academy.
Drottningin á Júpíter segir frá Elenóru Margréti Lísudóttur og helstu áhrifavöldum í lífi hennar: móðurinni Lísu sem dó úr depurð, sirkússtjóranum Lilla Löve, hinni dularfullu Mónu og lækninum í Vesturbænum, Benedikt Schneider.
Í ljóðrænni frásögn á milli draums og veruleika ferðast Elenóra um landið allt (og jafnvel sólkerfið) með sirkúsnum sínum. Þar fyrir utan hangir hún á Bravó á Laugavegi með vini sínum Starkaði Krumma Sirkússyni, krummanum sem vaktar barinn og röflar í kráargestum.
Úgefandi er Bókaútgáfan Deus.
Útgáfuhófið verður haldið á Loft Hostel, kl. 17 miðvikudaginn 22. ágúst – og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!
Viðburður á Facebook.