Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson birti í dag nýtt lag á Facebook-síðu sinni. Lagið er samið til dóttur Friðriks og er afar fallegt. Hlustaðu á lagið hér að neðan.
„Ég samdi lítið lag til dóttur minnar. Hún er orðin svo stór allt í einu. Fannst það krúttlegt svona á kassagítar og ákvað að deila því með ykkur,“ skrifar Friðrik við færsluna.
Friðrik hefur haft í nægu að snúast undanfarna daga en í síðustu viku gaf hann út lagið Segir Ekki Neitt. Það lag verður á nýrri safnplötu söngvarans sem kemur út í haust.
https://www.facebook.com/fridrikdor/videos/333134160562470/