Poppstjarnan Justin Timberlake tilkynnti á föstudag að fyrsta bók hans, Hindsight & All the Things I Can’t See in Front of Me, kemur út 30. október næstkomandi.
Bókin inniheldur ljósmyndir og sögur frá ævi hans, bæði í æsku og á fullorðinsárum. Timberlake segir frá leiklistarferlinum, strákabandinu NSYNC, sögum á bak við lög hans, eiginkonunni Jessicu Biel og syni þeirra Silas, sem er þriggja ára.
Bókin mun innihalda bæði ljósmyndir og sögur úr ævi Timberlake, bæði frá barnæsku og fullorðisárum.
„Sögur, hugleiðingar og athuganir hans á lífi sínu með það að sjónarmiði að gefa lesendum skýrari sýn yfir það hvað veitir honum innblástur og hvað felst í að framleiða jafn stórtæka tónleika og hann er vanur að gera.“