Í hádeginu í dag kl. 12.30 leiða sérfræðingar Listasafns Reykjavíkur gesti um sögulegan hluta sýningarinnar Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? á Kjarvalsstöðum.
Þar er að finna málverk eftir 15 valinkunna listamenn af víðernum landsins auk ljósmynda, skissa og kvikmynda frá hálendinu.
Á sýningunni er sjónum beint að verkum listamanna sem endurspegla tengsl Íslendinga við víðerni landsins og breytilegt verðmætamat gagnvart náttúrunni.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.