Leikkonan Hera Hilmar hefur verið ráðin í sjónvarpsþáttaröðina The Romanoffs, en hún bætist þar við hóp góðkunnra leikara á borð við Diane Lane, Aaron Eckhart, Amanda Peet, Isabelle Huppert, Paul Reiser og Mad Men-stjörnuna John Slattery.
Þáttaröðin verður framleidd fyrir Amazon og er skrifuð, leikstýrð og meðframleidd af Emmy-verðlaunahafanum Matthew Weiner, sem er aðalmaðurinn á bak við Mad Men.
Fréttamiðillinn Deadline greindi fyrst frá þessum fréttum, um er að ræða sjónvarpsseríu þar sem hver þáttur segir sjálfstæða sögu. Hera mun leika fágaða en illgjarna konu að nafni Ondine í þætti sem mun bera heitið The One That Holds Everything.
Reiknað er með því að þættirnir fari í loftið á næsta ári, en eins og glöggir vita fer Hera með aðalhlutverkið í stórmynd úr smiðju Peters Jackson, Mortal Engines sem frumsýnd verður í desember. Þar leikur hún söguhetjuna Hester Shaw, sem leitar hefnda á þeim aðila sem drap móður hennar og gaf henni örið sem sést á stillunni að ofan. Sagan gerist í framtíðarheimi en þar hefur jörðin eins og við þekkjum hana verið lögð í rúst í styrjöld. Þær fáu borgir sem eftir standa berjast innbyrðis um þær auðlindir sem í boði eru.
Nýju stikluna fyrir Mortal Engines má sjá að neðan.