Í nýjasta þætti þáttastjórnandans James Corden heimsækir hann Liverpool og býður Paul McCartney Bítli með á rúntinn.
Sá síðarnefndi sýnir Corden nokkra staði sem tengjast sögu og lögum Bítlanna, strákarnir ræða stelpumál, syngja Bítlalög og dansa.
McCartney segir söguna á bak við eitt þekktasta lag Bítlanna Let It Be, grunlausir vegfarendur fá sjálfur með sér af strákunum og þeir enda á að taka lagið saman á pöb fyrir gestina þar.