Bandaríski leikarinn Jeremy Renner lenti í óhappi við tökur á gamanmyndinni Tag og braut báða handleggi. Þetta staðfesti Jon Hamm, mótleikari hans í myndinni, í spjalli við Ellen DeGeneres þar sem hann sló á létta strengi.
„Jeremy braut báða handleggi á sama tíma,“ segir Hamm. „Þetta var á þriðja tökudegi myndarinnar og við áttum 40 eftir. Hafið það í huga að hér er maður sem hefur gert hundrað Avengers-myndir og ekkert komið fyrir. Svo leikur hann í kvikmynd sem fjallar um að spila „Klukk“ og þá brotnar hann eins og eldspýta.“
Hamm bætti við að slysið hafi ekki hindrað tökur myndarinnar, þrátt fyrir að vandamálið hafi verið leyst með óvenjulegum hætti. Renner hélt áfram að sinna tökum en þá var hann bundinn grænu gifsi sem stæði til að þurrka út í eftirvinnslu, svo hægt væri að teikna nýja handleggi með aðstoð tölvubrellna. Þetta er í fyrsta sinn sem slík vinna hefur farið fram við leikara á stórmynd og skyldi sjást í sauma þessara brellna geta bíógestir leikið sér að koma auga á gerviarma Renners.
Tag er byggð á sannsögulegum atburðum og segir frá vinahópi fyrrum bekkjafélaga sem ár hvert skipuleggja metnaðarfullan „klukk-leik“, sem krefst þess að þátttakendur þurfa sumir að ferðast um landið þvert og endilangt.
Renner og Hamm fara með helstu hlutverk myndarinnar ásamt Ed Helms, Jake Johnson, Islu Fisher og Hannibal Buress. Myndin verður frumsýnd hér á landi í lok júnímánaðar.