Næstkomandi laugardag, þann 2. júní, heldur hljómsveitin Vicky tónleika á Gauknum. Þetta eru fyrstu tónleikar sveitarinnar frá því að hún tók sér pásu frá tónleikahaldi árið 2012.
Á Gauknum þetta kvöld munu einnig koma fram hljómsveitirnar Casio Fatso og InZeros. Húsið opnar klukkan 21 en klukkan 21.30 ætlar Vicky að frumsýna nýtt myndband við lagið String Along sem kom út síðustu viku.
Myndbandið er unnið af þeim hæfileikaríku Birtu Rán Björgvinsdóttur og Ninu Petersen sem hafa verið áberandi í stuttmynda og tónlistarmyndbandagerð síðustu misseri.
Vicky hefur ekki verið þekkt fyrir neitt annað en kraftmikinn lifandi flutning og þétt sound. Þau hafa engu gleymt og lofa mögnuðum tónleikum þar sem nýtt efnið fær að hljóma í fyrsta sinn í blandi við lög af fyrri plötum.
Miðasala á tónleikana er hafin á midi.is og kostar þúsund krónur inn, einnig er selt inn við hurð. Fyrstu gestir fá frían bjór í boði Víking.
Nýja lagið „String Along“ verður best lýst sem ekta Vicky lagi, en það má heyra hér.